top of page

Næsta námskeið er áætlað 2023 og fer tímasetning eftir skráningu.
Námskeiðið er hugsað fyrir 16 ára og eldri (þá sem komnir eru í framhaldsskóla).

Flestir námsmenn finna fyrir einhverjum kvíða og óöryggi í kringum próf og

mikilvæg verkefni. Hæfilegur kvíði getur verið hvetjandi og gagnlegur þegar

mikið liggur við. En þegar kvíðinn er orðinn þrálátur getur hann haft

hamlandi áhrif á frammistöðu í mikilvægum verkefnum. 

Skortur á sjálfstrausti einkennir gjarnan þá sem finna fyrir miklum kvíða

í námi. Þetta getur komið fram í óraunhæfum kröfum um árangur,

fullkomnunaráráttu, kvíða, pirringi, vonleysi, frestun verkefna eða forðun.

Margir nemendur hafa reynt hefðbundnar leiðir sem kenndar eru við að ná tökum á prófkvíða og námstækni. Hjá Kvíðameðferðarstöðinni er boðið upp á námskeið sem er sérsniðið fyrir þá sem hafa ekki getað nýtt sér með nægjanlegum árangri þau úrræði sem skólar og námsráðgjafar bjóða upp á.

Námskeiðið verður haldið af tveimur sálfræðingum sem hafa sérhæft sig í að vinna með lágt sjálfsmat og námstengdan kvíða (þ.m.t. hefðbundinn prófkvíða). Hámarksfjöldi í hóp eru 16 manns sem tryggir að hægt sé að sinna hverjum einstaklingi innan hópsins. Hópurinn hittist vikulega í sex skipti.

Innihald og markmið námskeiðsins:

Námskeiðið er byggt á aðferðum hugrænnar atferlismeðferðar (HAM) sem eru sérsniðnar að þessum hópi. Efnistök námskeiðs verða eftirfarandi:

  • Kvíðastjórn í námi (t.d. hvernig er hægt að draga úr prófkvíða)

  • Hvernig óöryggi getur haft áhrif á hegðun og líðan í námi

  • Hvernig auka má sjálfsöryggi í námi með breyttri hugsun og hegðun

  • Hvernig draga má úr frestun og forðun

  • Leiðir til að vinna á fullkomnunaráráttu

  • Hvernig ná má betri einbeitingu með aðferðum árvekni (mindfulness)

  • Tímastjórn og jafnvægi milli náms og frítíma

Fyrirkomulag:

Unnið er í hópnum með fræðslu og umræðu en hver og einn kortleggur vanda sinn og fær einstaklingsmiðaða aðstoð við það.  Nemendur fá lesefni og verkefni heim á milli tíma til þess að prófa sig áfram með aðferðirnar sem kenndar verða á námskeiðinu. Lögð er áhersla á að kenna margvíslegar leiðir til að tækla vandann svo nemendur byggir sér upp verkfærakistu til þess að bregðast við og fyrirbyggja vandann.

ATH! Líkt og með önnur námskeið Litlu KMS þarf að bóka fyrst greiningarviðtal hjá sálfræðingi á Litlu KMS.  Greiningarviðtalið er hluti af einstaklingskortlagningu sem nýtist á námskeiðinu og á að tryggja að vandi skjólstæðings sé þess eðlis að aðferðir námskeiðsins muni koma honum að gagni.  Að öðrum kosti nýtist greiningarviðtal til þess að benda á annað úrræði sem talið er að henti viðkomandi betur.

Kostnaður við greiningarviðtal er greiddur aukalega og er það sama og almennt viðtalsgjald. 

Verð fyrir þetta 12 klukkustunda námskeið er:

Nánari upplýsingar og skráning:

Hægt er að óska eftir greiningarviðtali og jafnframt skráningu á þetta námskeið með því að smella hér.

Vinsamlegst tilgreindu undir skilaboð hvaða námskeið er óskað eftir.

Einnig er hægt að óska eftir frekari upplýsingum og skrá sig með því að hringja í Litlu KMS í síma 571-6110

eða með því að senda tölvupóst á litlakms@litlakms.is

 

Hér að neðan má finna svör þeirra sem sótt hafa námskeiðið við spurningunni:  

 

Hvað gagnaðist þér mest á námskeiðinu?

(1)   Hugsanaskráin og umræðan almennt. Eins og það að ég megi ekki láta líðan stoppa gjörðir.

(2)   Fannst gott að fara í gegnum hugsanaskráningar í tímum. Gott að sjá raunsætt og sjónrænt hlutina t.d. með meðalkúrfunni og taugafrumunum. Græddi mest á að skikka mig í pásur þó ég vildi það eða gat það ekki.

(3)   Að skilja að kvíði er alveg eðlilegur og flestir eru kvíðnir. Samþykkja kvíðann og að þetta sé bara svona. Mindfulness er virkilega gott, mun halda því klárlega áfram.

(4)   Að þekkja sjálfan mig, sættast við að vera kvíðin, læra að það þarf ekki allt að vera fullkomið, það er í lagi að falla eins lengi og ég gerði mitt besta.

(5)   Að vita að kvíðinn er ekki hættulegur og hann fer aldrei en það er hægt að sleppa því að hafa áhyggjur af að vera stressuð. Að nota tíma appið. Hugsa um kvíðann sem skrímsli. Þegar þið töluðuð um fullkomnunaráráttu.

(6)   Fullkomnunaráráttu umræðan hjálpaði mér mikið og bara að hlusta á hina tala vegna þess að mér leið ekki eins og ég væri ein með þessi einkenni.

(7)   Allskonar litlar staðreyndir eins og að einbeitingin komi við það að byrja og að nota mindfulness við lærdóm og frítíma. Einnig að það sé óhjákvæmilegt að lenda í meðaltali stundum og sætta sig við það, líkurnar eru svo miklar. Góð tímasetning á námskeiðinu á álagstíma og rétt fyrir lokapróf.

(8)   Fá aðferðir til að hjálpa mér við kvíðann. Tímastjórnun, vita að það sé best að pína mig í þetta og líka vita af því að aðrir eru að ganga í gegnum það sama en þetta er ekki bara ég. Hjálpaði líka að vita hvernig kvíðinn virkar en núna er ég meira meðvituð um hann.

(9)   Að heyra sögunar um dóttur hennar Steinunnar að reyna að læra að hjóla!! (fólk er mislengi að ná hlutum), tímastjórnun, að „klifra kvíðakúrfuna“, pína sig í að byrja, hluti um kvíða á sjálfum deginum.

(10) Að vita hvað kvíði er í raun og veru (líkamlegu einkennin). Mér fannst einnig gott að heyra hvað aðrir sögðu og hvernig þeirra kvíði er. Einnig hvernig þær hugsuðu alltaf dýpra um hugsanirnar t.d. af hverju ertu kvíðinn og af hverju það gerir þig kvíðna og svo framvegis.

(11) Líkamleg einkenni kvíða, tímastjórnun. Umbera og árvirkni.

(12) I got to know what anxiety is and how it works, so it is much easier to handle. There were also many good advices on how we could handle all of this.

(13) Tímastjórnun, árverkniæfingarnar, aðeins hugsanaskránna. Það var líka gott að fá fræðslu um kvíða yfir höfuð.

(14) Ég lærði ýmsar mismunandi aðferðir til þess að hjálpa mér að takast á við kvíðann sem ég mun núna geta æft mig í svo að mér líði betur.

(15) Allskonar leiðir til að tækla vandamál, gott að heyra frá öðrum. Sætta sig við hlutina hefur gagnast mér.

(16) Átta mig á því hvernig ég er sem námsmaður. Hjálpaði kvíðanum og fullkomnunaráráttunni.

(17) Að vera rólegri yfir hlutunum og er minna stressuð. Hver og einn tími gagnaðist mér á einhvern hátt, þá sérstaklega tímastjórnun og að kvíðinn sé eðlilegur.

(18) Að átta mig á því að líðan mín í kringum próf er kvíði og að viðbrögð mín eru eðlileg. Minnka fullkomnunaráráttu, breyta hugsunum, reyna að breyta neikvæðum hugsunum í jákvæðni. Taka kvíðann með mér, vita af honum en reyna samt að hugsa um eitthvað annað. Þarf að fara að láta tímann stjórna mér.

(19) Námskeiðið hjálpaði mér að skilgreina kvíðann og skilja hann. Kenndi mér að ná stjórninni.

(20) Að læra að sættast við það sem ég get ekki breytt og að breyta hlutunum sem ég get breytt.

(21) Tíminn um fullkomnunaráráttuna, hann var góður og kenndi mér mest.

(22) Þegar það var verið að tala um að hafa bara kvíðann hjá sér og að það sé bara allt í lagi og fleira.

(23) Mæta, hlusta og taka þátt, bara notalegt.

(24) Að læra að þekkja kvíðann. Einkenni og ástæður. Verkfæri til að takast á við hann.

(25) Sátt við kvíðann og að gera mér grein fyrir því að próf er ekki endilega að segja hver ég er eða allt um mína getu og framtíð.

(26) Læra á kvíðann, leyfa hlutunum að koma, athyglin.

Sjálfsöryggi og kvíðastjórn

fyrir námsmenn

litlakms@litlakms.is - Síðumúli 13 - s: 571-6110

Upplýsingar og verð sem koma fram á vefnum geta breyst án fyrirvara

bottom of page